Samráðsgátt opnuð vegna endurbóta á kísilverksmiðju í Helguvík

Stakksberg hefur opnað samráðsgátt vegna vinnslu frummatsskýrslu umhverfismats kísilverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík. Með samráðsgáttinni vill Stakksberg stuðla að auknu samráði við almenning, umfram það sem lög og reglur gera ráð fyrir, og er þetta í fyrsta sinn sem framkvæmdaraðili stendur fyrir samráði með þessum hætti á meðan á vinnslu frummatsskýrslu stendur. Með auknu samráði vonast Stakksberg til þess að fram komi athugasemdir frá almenningi sem stuðli að betri og vandaðri frummatsskýrslu.

Samráðsgátt Stakksbergs

Samráðsgátt Stakksbergs sækir fyrirmynd sína í samráðsgátt stjórnvalda. Öllum er frjálst að senda inn athugasemd eða ábendingu en til þess þarf að skrá sig inn með innskráningarkerfi island.is, Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Líkt og í samráðsgátt stjórnvalda eru athugasemdir í samráðsgátt Stakksbergs birtar opinberlega og undir nafni.

Þrjú mál hafa nú þegar verið birt í samráðsgátt Stakksbergs: samfélagsleg áhrif, ásýnd og hljóðvist. Fleiri atriði matsins verða birt eftir því sem vinnu við frummatsskýrslu vindur fram.

Samráðsgáttin er aðgengileg á slóðinni www.samrad.stakksberg.is.

Að samráðstímabili loknu verður gerð grein fyrir úrvinnslu athugasemda með samantekt á síðu hvers máls. Tekið verður tillit til athugasemda við vinnslu frummatsskýrslu eins og við á og auk þess mun samantekt fylgja sem viðauki við skýrsluna. Þegar frummatsskýrslu hefur verið skilað til Skipulagsstofnunar verða mál á samráðsgátt Stakksbergs, ásamt athugasemdum og öðru innsendu efni, tekin úr birtingu.

Umhverfismat vegna endurbóta á kísilverksmiðju í Helguvík

Stakksberg vinnur að endurbótum á kísilverksmiðju félagsins í Helguvík og hluti af því er endurskoðun á umhverfismati.

Vinna við nýtt umhverfismat hófst þann 25. júní 2018 þegar Stakksberg auglýsti drög að tillögu að matsáætlun vegna nýs umhverfismats. Tillaga að matsáætlun var birt þann 20. nóvember 2018 og var haldinn íbúafundur í Hljómahöll í Reykjanesbæ til að kynna málið þann 21. nóvember. Skipulagsstofnun auglýsti málið og kallaði eftir athugasemdum og lauk athugasemdafresti þann 15. desember 2018. Skipulagsstofnun gaf út ákvörðun um matsáætlun þann 12. apríl 2019.

Nú stendur yfir vinna við gerð frummatsskýrslu í samræmi við ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsáætlun og er áætlað að henni verði skilað til Skipulagsstofnunar í september 2019. Stofnunin mun í kjölfarið kalla eftir athugasemdum og umsögnum við hana í samræmi við lögbundið ferli.

Nánari upplýsingar um stöðu málsins hjá Skipulagsstofnun er að finna á vef stofnunarinnar.

Til baka